Varmavélar ehf

Nýjustu fréttir

PDF Almennur fróðleikur um varmadælur og lághitaofna

(PDF, 553kb)

 

2011.06.22  -

Gagnlegt námskeið í kælitækni

Fyrr í þessum mánuði átti undirritaður ánægjulega viku á skólabekk í suður Þýskalandi. Námsefnið var á sviði kælitækni og varmadælna, en alls sóttu námskeiðið á annað hundrað þátttakendur frá Kanada og Rússlandi úr norðri, Suður-Ameríkuríkjum til Ástralíu úr suðri, og allt þar á milli. Eins og alltaf gerist á svona námskeiðum hittast menn með ólíkan bakgrunn og ólík viðfangsefni, nýjar hugmyndir kvikna og verðmæt sambönd myndast.

Þáttakendur á námskeiðinu í Sindelfingen

Meginhluti þáttakenda samankominn í nýlistasafninu í Sindelfingen.

Margir þátttakenda glíma við krefjandi kæliverkefni í heimalöndum sínum en aðrir höfðu unnið áratugum saman við hönnun, smíði, og uppsetningu á öllum útgáfum kælikerfa þ.m.t ammoníaki og á seinni árum kolsýrukerfum. Þýska fyrirtækið Bitzer sem stóð fyrir námskeiðinu er eitt framsæknasta fyrirtæki heims á þessu sviði. Þeir eru löngu búnir að átta sig á hvað koma skal á næstu árum og áratugum og fara hamförum í þróun búnaðar til kælingar og hitunar.

Eftir þessa ferð hafa aðstæður Varmavéla breyst verulega. Nú liggur fyrir að bakstuðningur t.d. gagnvart stærri varmadælulausnum er auðfenginn. Einnig væri gefandi að geta byrjað sem fyrst að þróa nýjar lausnir, en það kostar þolinmóða peninga eða áframhaldandi fórnir með því að vinna endalaust fyrir ekki neitt.

Skoðið einnig vef Alvarrs.
FKD.

Eftir þessa ferð hafa aðstæður Varmavéla breyst verulega

 

2011.05.01  -

Varmadæla á Höfðabrekku

Í apríllok rákum við Ingvar á Höfðabrekku smiðshöggið á varmadæluverkefnið okkar. Fyrir nokkrum árum var borað á Höfðabrekku og upp komu rúmir 6 l/sek. af 38°C vatni. Það dugar vel til að halda öllum húsum heitum, en hiti þess er á mörkunum að duga til þvotta og baða auk þess sem útfellingar í blöndunartækjum og sturtuhausum hafa verið til óþurftar.

Horft heim að Höfðabrekku.

Við Ingvar tókum því til okkar ráða og erum nú búnir að koma upp kerfi sem hitar kalt lindarvatn upp í 55°C og skilar því inn á 19 þús l. miðlunartank. Ekki sýnist okkur veita af miðlunarrýminu þegar haft er í huga að Hótel Höfðabrekka telur 72 2ja manna herbergi sem eru oftast nær fullbókuð yfir sumartímann.

FKD.

...erum nú búnir að koma upp kerfi sem hitar kalt lindarvatn upp í 55°C og skilar því inn á 19 þús l. miðlunartank

 

2011.04.07  -

Heimasmíðuðu varmadælunum fjölgar

Varmadælan í Lóni malar eins og ánægður köttur. Þann 1. apríl s.l. sýndi orkuteljarinn 7803 kWh og gangtímamælirinn 3766 klst. Þessar tölur ná yfir tímabilið frá 1. júlí 2010 til 1. apríl 2011 og fæðivatnsdælan við seiðastöðina í Rifósi er ekki með í þessum tölum. Fæðivatnið er 7°C við inntak varmadælu. Þessar 7803 kWh má svo margfalda með 4,4 til að finna hversu mikilli orku varmadælan skilar frá sér.

Ein af varavélum RARIK í Neskaupstað

Ein af varavélum RARIK í Neskaupstað.

Þann 31 mars s.l. gangsettum við fyrstu loft-vatns varmadæluna okkar í varastöð RARIK á Neskaupstað. Henni er ætlað það hlutverk að halda diselvélunum hæfilega volgum milli þess sem vélarnar keyra inn á netið. Við lögðum mikinn metnað í smíði þessarar vélar, hún er útbúinn Rockwell iðntölvu frá Ískraft sem stjórnar m.a. afhrímingu og safnar jafnframt ýmsum upplýsingum. Við getum tengst Rockwell stöðinni úr fjarlægð og breytt gangskilyrðum varmadælunnar eða sótt upplýsingar eftir því sem þurfa þykir.

FKD.

Þann 1. apríl s.l. sýndi orkuteljarinn 7803 kWh og gangtímamælirinn 3766 klst